Undur leiksins: Hvernig einfaldir hlutir geta getað örvað þroska
Ímyndunarafl barna, eins og sést í leik Thelmu, er ekki afþreying, heldur er undirstaða náms og þroska. Í leiknum er hún að prófa sig áfram með hvernig hlutir vinna saman, þróa hugmyndir og prófa nýjar lausnir. Með því að hafa frjálsan aðgang að fjölbreyttum efniviði, hefur hún tækifæri til að kanna, uppgötva, og læra af eigin reynslu.
Ljósheimar Aðalþings
Ljósheimavefurinn er í mínum huga skemmtilegur vitnisburður um upphaf leikskólastarfsins í Aðalþingi, starfs sem hefur síðan þróast gríðarlega. Hann sýnir líka að leikskólastarf er ekki einn fasti, heldur síbreytilegt og tekur mið af því fólki, bæði fullorðnum og börnum sem er þar á hverjum tíma.
Makerspaces eða sköpunarrými
Hvað er makerspace eða sköpunarrými? Síðustu ár hefur hugtakið Makerspace farið eins og sina um hinn vestræna heim. Hugtakið sjálft er nokkuð nýtt en það byggist á gömlum og stöðugum stoðum. Eins og það er notað hérlendis er það ættað frá Bandaríkjunum. Hugtakið eins og það er gjarnan notað er komið frá tímaritinu Make magazine […]
Leikdeig án salts
Nýlega setti ég inn færslu um leikdeig, þar sem aðaluppistaðan var hveiti og salt. Nú ætla ég hinsvegar að kynna fyrir lesendum leikdeig án salts og hveitis. Það er gert úr matarsóda og kornsterkju, ég notaði kartöflumjöl en aðrir nota maísanamjöl. Í þetta skiptið tók ég myndir af öllu ferlinu og læt þær fylgja með. […]
Leikdeig – þægileg uppskrift
Leikdeig er mikið notað í mörgum leikskólum og líka heima. Það er auðvelt að búa til gott leikdeig og það er til þess að gera ódýrt. Nú eru framundan vetrarleyfi í grunnskólum og fólk í fríum með börnin sín og þá er oft gott að hafa nýtt leikefni að grípa í. Leikdeig er tilvalið leikefni, […]
Nám í skapandi starfi – eitthvað fyrir þig?
Við Háskólann á Akureyri leggjum við áherslu á að námið sé skapandi, rannsakandi og skemmtilegt. Starf leikskólakennara er skapandi starf, þar sem hver dagur ber með sér ný ævintýr og nýja möguleika til sköpunar. Starfið er fjölbreytt og þar getur fólk með ótrúlegustu áhugamál og fjölbreytta þekkingu notið sín og sérþekkingar sinnar. Leikskólakennarar þurfa að hugsa […]
Leikur ungbarna
Ung börn hafa mikla þörf fyrir að leika sér. Þau eru sífellt að rannsaka heiminn og prófa sig áfram. Þau rannsaka efnivið með því að handfjatla hann, þreifa á honum velta honum fyrir sér, prófa að setja saman og taka í sundur, stinga honum upp í sig. Þau láta hluti detta í gólfið, skella þeim saman. […]
Eðlisfræði í leikskóla
Eðlisfræði er daglegt viðfangsefni barna í leikskólum. Þau fást við ýmis eðlisfræðileg lögmál í gegn um leikinn. Fást þar við eðli hlutanna. Þau lyfta hlutum, láta þá renna, falla, þau róla sér, byggja úr kubbum, nota segla, láta hluti fljóta og sökkva og margt margt fleira. Í viðtali sem Pétur Halldórsson tók við mig á […]
Pappírsgerð
Börnum finnst yfirleitt gaman að búa til pappír, þau elska mörg drullumallið sem fylgir pappirsgerðinni. Undrið við að sjá pappír verða til er líka mikið. Ég lærði fyrst að búa til pappir fyrir rúmum 25 árum. Þá var þetta ný list hér og fáir sem ástunduðu, síðan hefur margt breyst. Á sínum tíma smíðum við […]
Ljósaborð
Ljósaborð hafa lengi fylgt leikskólum. Í Reggio Emilia eru þau hluti af staðalbúnaði hverrar deildar, þau eru þar í mismunandi stærðum og formum. Ljósaborð bjóða upp á leik og vinnu með opinn efnivið. þau gefa tækifæri til þess að upplifa efnivið á nýjan og oft öðruvísi hátt. Þegar t.d. tveir mislitir gagnsæir hlutir eru lagðir á borðið […]
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 43
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 44
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 45
Warning: Trying to access array offset on value of type bool in /var/www/virtual/laupur.is/htdocs/wp-content/themes/wp-creativix/scripts/wp-pagenavi.php on line 82